Vísir
Fréttir
Lífið
Íþróttir
Viðskipti
Vefmiðlar
BlogCentral.is
Innskráning
Nýskráning
Krunka töltir á hóla
Næst: Vestur-Súla
14.07.2009 14:00:36 / krunka
Vífilsfell
Í síðustu viku, nánar tiltekið á miðvikudag, skellti ég mér loksins á Vífilsfellið ... en þangað hef ég lengi ætlað en fór ekki fyrr en nú.
Fyrsta brekkan er mikið á fótinn og tók vel í, fór ég því rólega þar upp en svo kemur maður á sléttu þar sem hægt er að spretta úr spori, ef maður er ekki of upptekin af útsýninu og af því að taka myndir
Svo kom það sem kom mér mest á óvart, þessir líka flottu klettar, geggjað að sjá þetta og ekkert smá gaman að labba upp þá. Ekki rambaði ég þó á síðasta hluta uppgönguleiðarinnar alveg af sjálfdáðum en með smá hjálp þá komst ég upp að kaðlinum, sem ég þurfti nú ekki að styðjast við, og svo alla leið að vörðunni.
Svaka flott fjall, og flott útsýni - vel þess virði að ganga á það
Svo þegar ég var komin úr klettunum á niðurleiðinni ákvað ég að skokka það sem hægt væri af restinni og var það svo bara hægt alla leið niður
Uppgöngutími var langur, var svo mikið að dóla mér; 50 mín
Niðurleiðin var mun styttri í tíma eða; 25 mín
Ferðafélgar voru engir þar sem V.Í.N ræktin var í hjólatúr.
Fjall nr. 25 úr bókinni og nr. 18 á árinu
»
0 hafa sagt sína skoðun
Dagsetning
20. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:
8
Alls:
3844
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 19 febrúar
Gamalt blogg
Janúar - 2010 (6)
Október - 2009 (2)
September - 2009 (4)
Ágúst - 2009 (2)
Júlí - 2009 (1)
Júní - 2009 (8)
Aðalvalmynd
Dagbók
Gestabók
Myndasöfn
Vefstjórn
Undir berum himni
Flubbarnir
Gal-opna Líðnetið
V.Í.N
Flickr myndirnar mínar