Krunka töltir á hóla

Næst: Sumarfrí ;)

23.06.2011 00:57:55 / krunka

Leggjabrjótur

17.júí 2010
HSSH eða Hjálparsveit skáta í Hveragerði bauð mér að koma með í göngu um Leggjabrjót.  Þar sem ég var laus þessi helgi þá sló ég til, enda átti ég eftir að fara þessa leið og hafði lengi langað.  Ekki sá ég eftir að hafa skellt mér, þetta var heitasta helgi sunnanlands þetta sumarið og sólin lék við okkur ... og skildi eftir vel sviðna jörð ef svo má að orði komast!
Við gengum frá Svartagili og yfir í Botnsdal, leið var greið og gekk vel við tókum smá de-tour á leiðinni ef svo má að orði komast eða bara fórum pínu ranga leið ... en komum okkur þó upp á merkta slóð aftur og eftir það gerðum við allt rétt ;)
Þegar niður var komið tróðum við okkur í einn bíl og strákarnir skiluðu okkur Agnesi inn að minni Brynjudals þar sem við hugðumst tjalda inn í botni hans.  Við Agnes byrjuðum á því að trufla og pirra einn veiðimann, það var voða gaman :p  Svo héldum við göngunni áfram inn í botn og náðum þangað áður en strákarnir komu með bílana frá Þingvöllum. 
Eftir frábæran göngudag var kjöti hent í holu og svo snætt sem aldrei fyrr.
Veðurblíðan hélt áfram á sunnudeginum og á heimleiðinni busluðum við í ám og fossum sem og að skoða nokkrar fagurskreyttar heyrúllur.
Frábær helgi sem endaði með útkalli hjá HSSH.


Krunka
Hvergerðingurinn
Plástradrottninginn
Litli Hvergerðingurinn
Maður + Hundur

Árið: nr. 18
Bókin: x
Lengd:  16,4 km
Tími: 4h54m

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2011 00:08:31 / krunka

Geitafell

14.júlí 2010
V.Í.N ræktin að þessu sinni skundaði á Geitafell.  Nokkuð löng ganga á jafnsléttu áður en maður kemur að fjallinu, en þá tekur líka góður bratti við, amk þar sem við fórum á fjallið ;)  Topparnir voru svo eiginlega tveir áður en við röltum svo niður öxl sem minni bratti var í og aftur í bílinn sem var við Sandfellið.  Komum í bílinn rennandi blaut eftir að hafa ekki nennt í skelina eftir að byrjaði að rigna fljótlega eftir að við vorum komin á jafnsléttu aftur!!

Krunka
Stebbi Twist
Hvergerðingurinn


Árið: nr. 17
Bókin: nr. 47
Lengd:  8,2 km
Tími: 2h23m


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2011 00:01:31 / krunka

12:35

Útilega í Húsafelli, og því við hæfi að rölta á Strút í góðum félagsskap.  Flott ganga eftir veginum sem liggur á fjallið, en því miður þá var þokuslæðingur á toppnum svo ekki sást til allra átta bara sumra ;)  Það er svo skemmst frá því að segja að við rétt náðum í bílana áður en skýin gjörsamlega helltu úr sér vatninu!  Og við flúðum inn í næsta helli, Surtshelli, gengum hann til enda og fórum svo yfir í Stefánshelli sem var einkar skemmtilegur að skoða. 
Áttum svo góða helgarrest í tjöldunum og enduðum helgina á baði í Krosslaug.


Krunka
Stebbi Twist
Maggi Brabra
Elín Ríta
Andrés Þór
Birgir Björn
Matti Skratti
Þórunn Skratti

Árið: nr. 16
Bókin: nr. 46
Lengd:  4,3 km
Tími: 2h11m


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2011 23:49:48 / krunka

Hjólatúr um Heiðmörk

6.júlí 2010
Hefðbundin VÍN rækt, hjólað saman frá Stíflu og upp í Heiðmörk, góðan hring þar um malarstígana og svo aftur heim.  Eins og alltaf þá þykir mér svolítið erfitt að hjóla í hóp með öðrum, það er yfirleitt alltaf í lagi að hjóla einn með sjálfum sér en þegar aðrir og mun betri hjóla-einstaklingar eru með þá er ekki svo gaman :^)

Krunka
Stebbi Twist
Reynir

Lengd: 35,1 km
Tími: 3h30m

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2011 23:26:10 / krunka

Jónsmessa + Fimmvörðuháls

25.júní 2010
Loksins var komið að því að ég kæmist í göngu um þennan víðfræga og margumtalaða Fimmvörðuháls.  Einn galli var þó á gjöf njarðar, ef galla skyldi kalla, jú það var búið að gjósa á miðjum Hálsinum og gönguleiðin örlítið breytt.  En það var nú eiginlega bara til að gera þessa göngu enn eftirminnilegri og frábærari. 
Við lögðum af stað frá Skógum um kl. 21:30 á föstudagskvöldi, frábært veður var á allri leiðinni, meira að segja logn á Hálsinum! Já og askan sem lág yfir öllu gerði gönguleiðin og umhverfið að sannkölluðum ævintýraheim ... og það allra bezta var að ENGIN annar en við 3 lögðum í göngu yfir þessa nótt :haha:  Við hittum svo fyrstu manneskjuna þegar við vorum komin í hlíðar Magna ... svo var einhver ferðafélagshópur á leið upp Bröttufönn ... eftir það vorum við aftur orðin ein :)
Undir morgun sátum við svo á Kattarhryggjunum og drukkum bjór ... svo var haldið áleiðis inn í Bása, tjaldað og farið að sofa.


Krunka
Stebbi Twist
Hvergerðingurinn

Árið: nr. 15
Bókin: x
Lengd: 23,7 km
Tími: 7h56m

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2011 22:52:23 / krunka

Vífilsfell

22.júní 2010
V.Í.N ræktin og var hún fámenn eins og svo oft áður, en klárlega góðmenn :)  Lítið bar til tíðinda á leiðinni upp en þegar við vorum komin vel á veg niður síðustu brekkuna sáum við hvar bíll kom inn á bílaplanið fyrir neðan fjallið og byrjaði að hringspóla hringin í kringum Pollý!! :^) Allt fór þetta þó vel og engar skemmdir urðu á bílnum, en kauði var fljótur að koma sér í burtu þegar hann sá að við nálguðumst!

Krunka
Stebbi Twist

Árið: nr. 14
Bókin: nr. 45
Lengd: 4,0 km
Tími: 1h28m



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 23:38:40 / krunka

11:35 - Þjóðhátíð

17.júní 2010
Hvað er betra en að eyða Þjóðhátíðardeginum í blíðskapar veðri upp á hálendi íslands og njóta náttúrunnar og ganga á fjöll? Nei ég bara spyr, ég tel fátt eitt betra.

Kvöldið fyrir Þjóðhátíð fórum við ásamt Ánastaðahjónum tví bíla upp á Kjöl.  Eyddum við fyrri nóttinni inn við Hvítárvatn og gátum við þar dáðst að því undurfagra útsýni sem þar er og jafnframt rifjað upp gönguskíðaferð sem við höfðum farið ekki svo löngu áður yfir vatnið.
Morgunin eftir á Þjóðhátíðardeginum sjálfum var haldið áfram, og var m.a. komið við inn í Kerlingarfjöllum þar sem ýmislegt var brallað.  Eftir góða stund þar héldum við áfram og var komið að því að skunda á hól.  Þar sem við vorum jú á Kili kom ekkert annað til greina en að rölta á Kjalfell.
Eftir að niður var komið tók við árangurslaus leit að Beinahól, amk fundum við ekki vörðuna sjálfa en Hólinn teljum við okkur hafa fundið samt sem áður!

Enduðum svo daginn inn á Hveravöllum þar sem við grilluðum, skelltum okkur í laugina og tókum miðnæturgöngu um hverasvæðið, gömul hús og réttir ... sólarlag og geggjað veður 8)  Daginn eftir brunuðum við Twist hjónin svo í bæinn.

Krunka
Stebbi Twist
Eyþór
Bogga

Árið: nr. 13
Bókin: nr. 44
Lengd: 12,6 km
Tími: 4h22m


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 23:24:54 / krunka

10:35

13.júní 2010
Eftir vel heppnað Kotmót, að vanda, brunuðum við aftur á Snæfellsnesið til að toppa enn eitt fjallið.  Og varð hið undurfagra Drápuhlíðarfjall fyrir valinu.  Ekki ýkja erfitt fjall, en þó smá laust grjót og þá sérstaklega í "fyrri" hnjúknum ef svo má að orði komast, en einnig er hægt að fara upp gil nokkurt og þá er komið upp á milli "hnjúkana" og er með því móti hægt að toppa bara þann hærri.  En við byrjuðum gönguna við skógræktarreit nokkurn undir hlíðum fjallsins og fórum því upp og svo niður og upp og svo niður og svo utan í hlíðina og niður :p

Krunka
Stebbi Twist

Árið: nr. 12
Bókin nr. 43
Lengd: 5,7 km
Tími: 1h57m

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 23:19:03 / krunka

9:35

12.júní 2010
Svona áður en allir mættu á Kotmót og grillið og þar með geimið byrjaði urðum við nú að búa til pláss fyrir matinn ... eða þannig sko!  En ekki fyrr en eftir að við vorum búin að baða okkur í Guðrúnarlaug á Laugum í Sælingsdal ... öfugsnúið? Já kannski ;)
Við fórum upp frá Gröf, upp mjög flott gil og upp á heiðina.  Þar tók við GPS leit að Bjarnafjalli en þó það blasi nú alveg við þegar maður kemur að því þá sést það ekkert sérstaklega við innan um hinar þúfurnar!!
Á bakaleiðinni ákváðum við að rölta á Svarfhólshnúkana, en þeir eiga víst að vera 3 og er ég viss um að við fórum á 2 þeirra, en um þann síðasta er ég ekki 100% viss en held samt að við höfum toppað hann.  Komum svo niður fyrir ofan Engihlíð og múttan góða sótti okkur þangað.

Krunka
Stebbi Twist

Árið: nr. 11
Bókin: x
Lengd: 11,3 km
Tími: 3h12m

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 23:12:01 / krunka

8:35

11.júní 2010
Kirkjufell, já loksins gafst færi á að skunda upp á þetta líka tignarlega fjall.  Á leið á Kotmót komum við við í Grundarfirði og plötuðum veðrið og röltum í frábærri kvöldstillu og kvöldsól á Fellið.

Hrikalega ganga á köflum en hvers spors virði :haha:

Krunka
Stebbi Twist

Árið: nr. 10
Bókin nr. 42
Lengd: 4,2 km
Tími: 2h16m

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 23:05:54 / krunka

V.Í.N ræktin

8.júní - Keilir.

Í þetta sinn sprengdi ég engin dekk ... mín önnur ferð á þetta ágæta fjall, flott veður og undan engu var að kvarta :)

Krunka
Stebbi Twist
Blöndudalurinn
Hvergerðingurinn

Lengd: 7,4 km
Tími: 2h10m
Bókin: farið áður
Árið: nr. 9


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 23:00:28 / krunka

Hjólaferð á heimaslóðum

Já ekki er maður oft á heimaslóðum að leika sér ... en 31.maí 2010 var ég næstum því búin að vera í viku tjilli á Ak city þar sem fallhlífasviðs strákarnir í FBSR voru á stökkviku inn á Melgerðismelum.

Þennan dag ákvað ég að hjóla að heiman, Tröllagil, og inn á Mela.
Skemmst er frá því að segja að veðrið lék við mig, nema að það örlaði á mótvindi :evil: sem gerði ferðina svolítið strembna.

Annars var leiðin greið, ég fór sem leið lá úr Þorpinu og yfir á Brekku og niður Skautabrekkuna en eftir það er leiðin nokkuð ljós nema að ég fór upp hjá Kristnesi og niður hinu megin, bara svona af því bara ;)

Krunka

26,8 km
1h48m



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 22:56:30 / krunka

7:35 + Hnappavellir (útskriftarferð inn í FBSR ...)

... ef svo má að orði komast.  FBSR-2008-2010 fór aldeilis flotta ferð á Þverártindsegg í Suðursveit 22.maí 2010 og má kalla þessa ferð nokkurs konar útskriftaferð úr nýliðunum, amk var þetta sú síðast sem nýliðar :)

Eftir að búið var að fá leigðan þennan líka flotta LandRover Definder fyrir hópinn var skundað úr bænum rétt eftir miðnætti aðfaranótt laugardagsins 22.maí.  Keyrt var sem leið lá í austurátt en samt eginlega suður á land ... já flókið en svona er þetta bara.  Eftir langa keyrslu og undir morgun var mannskapurinn orðin oggu ponku sybbinn og var því tekið á það ráð að keyra út í kant, sennilega fyrir neðan Svínafell í Öræfasveit.  Alla vega þá hentum við út dýnu, bívak og svefnpoka og steinrotaðist mannskapurinn í um 2 - 3 tíma.

Eftir þennan líka frábæra dúr var haldið áfram, komið við á Fagurhólsmýri og fengnar upplýsingar hjá Einari Ísfeld áður en haldið var sem leið lá inn Kálfafellsdal ... þar er nú meiri dalurinn hehe8|

En svo var bara að leggja á Eggina.
Ferðin gekk vel eða það héldum við amk svona framan af ... komumst reyndar að því skömmu seinna að við vorum á röngum hrygg og þurftum því að taka á okkur svolitla lækkun með smá klöngri og öðru brölti en það var bara til að krydda ferðina og komumst við svo á réttan slóða sem leiddi okkur svo upp á jökul.  Við tók mikill hliðarhalli með alveg ágætri brekku niðurávið!  Við munduðum bara ísaxirnar og komumst þá þverun án annara hjálpartækja, spurning hversu gáfulegt það var reyndar ... :$
Áður en við lögðum á skriðjökulinn Skrekk smelltum við okkkur í línu.  Helgi Blauti tók að sér línustjórnun og fórst það afskaplega vel úr hendi.  Eftir Skrekk tekur við 45° brekka ... og svo bara frábært landslag jökuls sem menn verða bara að fara þarna upp til að sjá með sínum eigin :)

Upp fórum við og niður aftur í frábæru veðri og biðjum ekki um meira :)
Enduðum svo helgina á smá klifri á Hnappavöllum.

Krunka
Stebbi Twist
Matti Skratti
Mæja jæja
Bangi
Helgi Blauti
Hudson

Km: 11,3
Tími: 8h41min
Árið: nr. 8
Bókin: 41


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 22:50:50 / krunka

6:35

15.maí 2010.
Eyrarfjall er fjall ekki svo ýkja hátt í Esjunni, sirka suð-austan við Miðfellsvatn.  Það er nokkuð þægileg ganga á þetta fjall og er hægt að nálgast það nánast hvaðan sem er, og þegar upp er komið getur verið trikkí að finna topppinn ;)
Eitthvað tók þessi ganga á litluna, en þetta gekk þó allt og allir komumst bæði upp og niður.

Krunka
Stebbi Twist

Km: 8,1
Tími: 2h03min
Árið: nr. 7
Bókin: x









» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2011 22:44:53 / krunka

5:35 + Fyrsta tjaldútilega sumarsins (Þráðurinn tekinn upp aftur)

Er ekki alveg tilvalið að þylja upp nokkur nöfn, þó það sé ekki nema fyrir mann sjálfan í ellinni ;)

Eftir hjólaferðina sem minnst var á hér að neðan var haldið áfram með 35 tinda verkefnið.

Kirkjan gladdi okkur með enn einum fimmtudags frídeginum þessa vikuna, þ.e. 13.maí 2010, á sjálfan Uppstigningardaginn brunuðum við því í tjaldútilegu til einnar náttar í Hlíðinni Fögru.  Eftir góða nótt þar og nokkur bit :^) röltum við upp á Þríhyrning og var planið að sjá aðeins til gossins, en skýin ákváðu að þvælast fyrir svo ekkert varð úr því útsýninu.  En eins og nafnið gefur til kynna eru 3 tindar á þessu fjalli.  Skemmst er frá því að segja að farið var á þá alla og er svo sem ekki mikið að segja frá því, nema að allt gekk vel.

Á leiðinni heim skoðuðum við húsarústir sem eru við fjallsrótina.

Krunka
Stebbi Twist


Bókin: nr. 40
Árið: nr. 6
Km: 8,3
Tími: 3h10m


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 18536
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 23 júní
Undir berum himni
Gal-opna Líðnetið